miðvikudagur, júlí 27, 2005

Æfing kl 20!!
Jæja, nú held ég að það hljóti að vera kominn tími á æfingu hjá Mannsanum, svona rétt fyrir verslunarmannahelgina, sem Mannsinn mun taka hófsamlega, enda verður á sunnudaginn ekki nema vika í stórleikinn. Og ekki ætti veðrið að skemma fyrir mætingunni (16,5° austanmegin við aðalinngang Seðlabankans). Því geri ég kröfu að við náum nú að fullmanna svona eins og eina æfingu í sumar (ca. 14 myndi ég telja lágmark).

Ég mun reyna að hringja í einhverjar steikur í liðinu (lesa: Ármann) og fá þá til að hringja út í e-ð af liðinu, þar sem að helmingurinn af ykkur virðist ekki enn vera tilbúinn til að stíga inní internet-öldina.

En alla vegana skyludmæting í kvöld!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim