fimmtudagur, apríl 30, 2009

OK - FYRSTI LEIKUR - VIL FÁ STAÐFESTINGU Á MÆTINGU!!

Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina að við förum að detta út úr bikarnum á móti liði sem er skýrt í höfuðuð á krónískum alkóhólista.

Það er frí á föstudaginn þannig að það er engin afsökun fyrir nokkurn mann að mæta ekki í leikinn.

Ég er ennþá í sárum eftir þetta rugl á þriðjudaginn hjá okkar mönnum. Ég geri því kröfu um að menn eins og Baldinho og Siggi Giggs mæti trylltir til leiks auk míns sjálfs.

Þannig að hverjir ætla að mæta?

Væri gott að taka bolta í dag en held það séu minni líkur á að það takist en að stöðva útbreiðslu svínaflensunnar þannig að við sjáumst væntanlega bara allir á morgun.

OOOOGGG MAAAANNNSSSI!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim