fimmtudagur, ágúst 19, 2004

Leikur

Leikur í kvöld 19. ágúst við Áreitni kl 19:29 á Ásvöllum. Þar sem fyrirliðinn og aðalmaðurinn er í leikbanni ákvað hann að skreppa til Croatia í 13 daga. Hann óskar Mannsa hérmeð góðrar lukku í komandi leikjum. LIFI MANNSI!!

fimmtudagur, ágúst 12, 2004

Leiðindi

Mannsi tapaði fyrir mömmustrákunum í Marshall. Hrein unun var að horfa á leik Mannsa í fyrri hálfleik, Mannsinn lét boltann ganga vel og sköpuðust mörg færi við það en inn vildi boltinn ekki. Í staðinn skoruðu mömmustrákarnir ljótt mark úr frákasti eftir aukaspyrnu. Svo skoruðu þeir aftur fyrir lok fyrri hálfleiks. Seinni hálfleikurinn var plúsmínus en Himmi skoraði eitt mark og Ásgeir refsaði mömmustrákunum. LIFI MANNSI!!

sunnudagur, ágúst 08, 2004

Áminning

Ég minni á leik við Marshall á þriðjudag kl. 21:00 á velli Ása. LIFI MANNSI!!