miðvikudagur, júlí 27, 2005

Æfing kl 20!!
Jæja, nú held ég að það hljóti að vera kominn tími á æfingu hjá Mannsanum, svona rétt fyrir verslunarmannahelgina, sem Mannsinn mun taka hófsamlega, enda verður á sunnudaginn ekki nema vika í stórleikinn. Og ekki ætti veðrið að skemma fyrir mætingunni (16,5° austanmegin við aðalinngang Seðlabankans). Því geri ég kröfu að við náum nú að fullmanna svona eins og eina æfingu í sumar (ca. 14 myndi ég telja lágmark).

Ég mun reyna að hringja í einhverjar steikur í liðinu (lesa: Ármann) og fá þá til að hringja út í e-ð af liðinu, þar sem að helmingurinn af ykkur virðist ekki enn vera tilbúinn til að stíga inní internet-öldina.

En alla vegana skyludmæting í kvöld!

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Borgun

Sumir eiga ennþá eftir að borga ársgjaldið og enn aðrir treyjur.
Ársgjaldið er 6000 kall (ég held Atli og Kári)
Treyjur 3000 kall (Kobbi, Jölli, Þór, Igor)
Ég lagði út fyrir treyjunum sjálfur þannig að það væri fínt að fá eitthvað af þessu tilbaka.
rekningsnúmer 0137-26-34259 kt. 170783-4259

LIFI MANNSI!!!

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Leikur í kvöld

Leikurinn hefst kl. 21:00 á Leiknisvelli. Sýna lit, mæta snemma og hita upp.

þriðjudagur, júlí 19, 2005

Bolti í kvöld kl 20 útí KR.
Veitir ekki af að fá smá æfingu fyrir stórleikinn á morgunn. Trúi ekki öðru en að Mannsinn fjölmenni í þessu veðri.

mánudagur, júlí 18, 2005

Fótboltaklúbburinn - Mannsi

Fótboltaklúbburinn - Mannsi á miðvikudaginn kl.21:00.

miðvikudagur, júlí 13, 2005

Æfing kl. 20

Æfing kl. 20 útí KR

Þar sem að æfingaleiknum hefur verið frestað, var ég að pæla hvort það væri ekki bara sniðugt að halda æfingu í staðinn. Það voru 9 mannsar búnir að staðfesta komu sína í leikinn, og ef að slík mæting yrði á æfingu þá væri sennilega um met-mætingu að ræða í sumar.

Get líka látið M-boltann vita ef að við verðum ekki nógu margir.
Frestun!

Æfingaleiknum hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

LIFI MANNSI!!

þriðjudagur, júlí 12, 2005

Æfingaleikur?

Vilja menn taka æfingaleik á morgun miðvikudag við Augnablik (Gamla FC Läter)?

LIFI MANNSI!!!

sunnudagur, júlí 10, 2005

Sigur á Reisn

Mannsi 5- Reisn 1. Glæsilegur sigur okkar. Siggi Steindórs með 2, Kjarri 2 og Atli 1. Mannsa vélin að komast í gang. Baráttan til fyrirmyndar.

Næsti leikur er miðvikudaginn 20. júlí við Fótboltaklúbbinn. Eins og menn vita verma þeir nú toppsætið. 6 stiga leikur. Ágætt ef við gætum neglt niður æfingu fyrir leikinn með góðum fyrirvara t.d. næsta laugardag kl: 16:00 úti á KR.

Leikur í kvöld 19:30, mæting 19:00 Leiknisvelli

Leikur í kvöld 19:30, mæting 19:00 Leiknisvelli. Mikil forföll þannig að menn þurfa að taka sig saman í andlitinu, sleppa sunnudagssteikinni og mæta! Þjálfarinn í Búlgaríu, Þór kemur ekki, siggi Þ ekki, Dabbi hlö í veiði, Arnar og Ásgeir að vinna. Menn fá að spila mikið. Og Ármann.. ekkert væl, þú kemur!

föstudagur, júlí 08, 2005

Hvað segja menn um æfingu á morgun laugardag kl. 17.00?

LIFI MANNSI!!

þriðjudagur, júlí 05, 2005

Bolti í kvöld kl. 20:00?

LIFI MANNSI!!