föstudagur, júní 25, 2004

Spjallaspjalla

Mannsaspjall er komið í gang. Linkur á það efst hægra megin. LIFI MANNSI!!

þriðjudagur, júní 22, 2004

Enn eitt tapið

Þriðja tap Mannsa er staðreynd. Sorglegt að sjá Mannsan tapa 5-1 eftir að hafa leitt 1-0 og verið nálægt því að jafna 2-2 en lífið er tík og svona endaði það. Við verðum bara að gíra okkur saman fyrir bikarleik á mánudag. Það er æfing á fimmtudaginn kl. 21:00 og þeir sem komast ekki eiga að hafa samband við Ármann, hinn nýkjörna æfingastjórnunarmeistara í síma 8671828. LIFI MANNSI!!
Leikur

Það er enn og aftur stórleikur í kvöld er Mannsi tekur á móti Hunangstunglinu hjá Álverinu. Mæting Á SLAGINU 20:30. Ég veit að það er leikur í sjónvarpinu en það gengur ekki að fólk sé að detta inn eina mínútu áður en leikurinn á að hefjast eins og síðast. Við verðum að gefa okkur tíma í að tala saman og hita okkur aðeins upp. Ef menn sjá sér ekki fært um að mæta þá væri fínt að hafa samband við mig (6983854) og tilkynna forföll.
LIFI MANNSI!!

P.S. Næsti leikur er í bikarnum við FC Läder 28. júní kl. 21 í Laugardal

fimmtudagur, júní 17, 2004

Tap

Nenni ekki að tala um leikinn sem við töpuðum en það er æfing á eftir kl. 9. LIFI MANNSI!!

laugardagur, júní 12, 2004

Leikur!

Á morgun sunnudag er eins og allir vita stórleikur. Ekki bara í Portúgal heldur einnig á Íslandi nánar tiltekið á Ásvöllum þar sem Mannsi keppir við Geirfugla. Mæting kl 17:30 LIFI MANNSI!!

þriðjudagur, júní 08, 2004

Æfing í kvöld (þriðjudag) kl 21 á KR velli