fimmtudagur, apríl 30, 2009

OK - FYRSTI LEIKUR - VIL FÁ STAÐFESTINGU Á MÆTINGU!!

Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina að við förum að detta út úr bikarnum á móti liði sem er skýrt í höfuðuð á krónískum alkóhólista.

Það er frí á föstudaginn þannig að það er engin afsökun fyrir nokkurn mann að mæta ekki í leikinn.

Ég er ennþá í sárum eftir þetta rugl á þriðjudaginn hjá okkar mönnum. Ég geri því kröfu um að menn eins og Baldinho og Siggi Giggs mæti trylltir til leiks auk míns sjálfs.

Þannig að hverjir ætla að mæta?

Væri gott að taka bolta í dag en held það séu minni líkur á að það takist en að stöðva útbreiðslu svínaflensunnar þannig að við sjáumst væntanlega bara allir á morgun.

OOOOGGG MAAAANNNSSSI!!

mánudagur, apríl 27, 2009

Leikur á föstudaginn!!!!!

Sælir!

Þeir voru að setja inn tímasetningu á fyrstu leikjunum og við eigum leik á föstudaginn (1. maí).

Kl. 17:00 Mannsi FF...................vs..........FC Adriano

Hverjir mæta í úrslitaleikinn á morgun og hverjir mæta á föstudaginn?

LIFI MANNSI!!!!

laugardagur, apríl 18, 2009

Carlsbergdeildin sumarið 2009

Búið er að raða í riðla en tímasetningar hafa hins vegar ekki enn verið settar niður. Til gaman má geta að við hófum leik í fyrra þann 6. maí við Kumho Rovers þar sem við lönduðum sigri 4-2. Í sumar mun Mannsi leika í riðli B með eftirfarandi liðum:

BOS
ÍK
Boot Camp
Team Lebowski
Íslandspóstur
Heiða í dal
Strumparnir
Bananar
Brostnir draumar

þriðjudagur, apríl 14, 2009

Þriðjudagsbolti 14. apríl

Hverjir mæta?

mánudagur, apríl 06, 2009

Bolti 6. apríl

Búið er að greiða fyrir þátttöku í Carlsberg í sumar, en hefur stór biti af gjöldunum lent á mér og Geira. Hvet þá sem að eiga eftir að borga að gera það sem fyrst.

Hverjir mæta í bolta?