Jólahlaðborð?Nokkuð galin hugmynd miðað við hvernig ástandið er á nokkrum hlunkum í þessu félagi. Ég gerðist allavega svo frakkur að athuga verðin og upp á hvað væri verið að bjóða. Athygli mína vakti að bestu verðin eru ekki um helgar, heldur á virkum dögum og lægst í hádeginu. Matseðlarnir eru nokkuð freistandi en verðin eru frekar há, allt frá 3000 kr. og upp í 5.700 kr.
Matseðlana má sjá á: Hotel loftleiðir(
http://www.veitingasalir.is/?ew_news_onlyarea=&ew_news_onlyposition=1&cat_id=1295&ew_1_a_id=731), lækjarbrekku á (laekjarbrekka.is), Argentína(ekkert að sjá á heimasíðunni, hringdi og til boða stendur kalkúnn, lambafille, naut, salöt, sætar kartöflur og eftirréttahlaðborð svo ég tali í stórum dráttum og Hereford(
http://www.hereford.is/55/).
Síðan er hitt að einhver slái upp jólaglöggsveislu sem kæmi betur við budduna. Hvernig sem það nú fer væri fínt ef Ármann reddaði ámu af Frakklands besta víni Chatue teri onch' út á frændskapinn við foreldra sína.
Stjórnin hefur einróma samþykkt að bóka tíma eftir áramót. Gengið verður í þau mál í vikunni. Sennilega verður eitthvað svipað uppi á teningnum og í fyrra. Seint að kvöldi og ódýrt, nema þá að vilji sé fyrir tímum fyrr á kvöldin. Stílum á Egilshöll eða fífuna.
með kveðju,
Stjórn Mannsa